Barcelona náði aðeins jafntefli í Rússlandi - Messi spilaði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. september 2010 18:18 Úr leiknum í dag. Mynd/AP
Barcelona náði aðeins 1-1 jafntefli á móti Rubin Kazan í leik liðanna í D- riðli Meistaradeildarinnar í dag en leikurinn fór fram á undan öðrum leikjum dagsins vegna tímamismunar í Rússlandi. Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, tók áhættu og setti Lionel Messi inn á síðasta hálftímann en allt kom fyrir ekki og liðið varð að sætta sig við að fara aðeins með eitt stig heim til Spánar. Rubin Kazan er því áfram með tak á spænsku meisturunum sem hafa ekki náð að vinna þá í þremur tilraunum. Christian Noboa kom Rubin Kazan í 1-0 með marki úr vítaspyrnu á 30. mínútu eftir að Dani Alves hafði gerst brotlegur inn í teig. Þannig var staðan í hálfleik og allt fram að 60. mínútu leiksins þegar Andrés Iniesta fiskaði víti fyrir Barcelona. David Villa fór á punktinn og jafnaði leikinn. Lionel Messi kom inn á sem varamaður strax eftir að David Villa jafnaði leikinn. Messi minnti nokkrum sinnum á sig og átti meðal annars skalla úr góðu færi sem fór yfir markið. Obafemi Martins hjá Rubin Kazan fékk frábært færi fjórum mínútum fyrir leikslok en skallaði þá í stöngina af stuttu færi. Barcelona fékk þó fleiri færi og þar á meðal skaut Andrés Iniesta yfir markið úr algjöru dauðafæri í uppbótartíma leiksins.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Fleiri fréttir Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Sjá meira