Landið tekur að rísa! - Grein 2 Steingrímur J. Sigfússon skrifar 21. ágúst 2010 06:00 Aðgerðir ríkisstjórna og árangur, febrúar 2009 - ágúst 2010, grein 2. Ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingingarinnar tók við erfiðu verkefni fyrir einu og hálfu ári í kjölfar hrunsins. Ekki einungis beið hennar að reisa nýtt hagkerfi úr rústum þess gamla, heldur tók hún við í andrúmslofti mettuðu reiði og tortryggni, ekki síst í garð stjórnmálanna. Slíkt ástand var, og er kannski enn, eðlilegt í ljósi þess að þau stjórnmálaöfl sem almenningur hafði treyst og ítrekað veitt umboð sitt til þess að stjórna landinu í hartnær tvo áratugi brugðust fullkomlega. Fjölmenn mótmæli sýndu fram á mikilvægi samtakamáttarins og að breytingar væru mögulegar en vöktu um leið miklar væntingar til þeirra sem við tóku. Verkefni ríkisstjórnarinnar hefur því ekki eingöngu verið að rétta af hagkerfið heldur ekki síður að byggja upp traust, eða í það minnsta reyna að eyða tortryggni og endurheimta glataða tiltrú. Auka trúverðugleikaÍ tíð núverandi ríkisstjórnar hefur mikil áherslu verið lögð á að svara því kalli um endurbætur og siðbót sem ómaði í samfélaginu í kjölfar hrunsins. Það hefur m.a. verið gert með því að efla og auka trúverðugleika þeirra eftirlitsstofnana sem brugðust, t.d. með nýrri, faglegri yfirstjórn í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Embætti sérstaks saksóknara var stóreflt auk þess sem hin þekkti saksóknari Eva Joly var ráðin því til ráðgjafar. Að auki hafa rannsóknir á skattalagabrotum verið efldar og heimildir til þeirra auknar, sem m.a. gera mögulegt að frysta eignir á meðan rannsókn stendur yfir. Meðal fyrstu verka stjórnarflokkanna var að afnema með öllu eftirlaunaforéttindi ráðherra og alþingismanna, - „eftirlaunaósómann"- . Dagpeningar og risna voru skorin niður auk þess sem hæstu laun hjá ríkinu voru lækkuð. Síðastliðið vor samþykkti síðan Alþingi lög sem kveða á um faglegar ráðningar í stöður dómara við Hæstarétt og héraðsdómstóla en stöðuveitingar í þau embætti hafa verið mjög umdeildar. Þar með var bundinn endi á þá hefð að valdhafar skipi pólitíska vildarvini sína í þau embætti eins og alltof mörg dæmi eru um. Lög um almennar siðareglur fyrir alla ríkisstarfsmenn voru samþykkt og er nú unnið að því að setja ráðherrum og starfsmönnum stjórnarráðsins sértækar siðareglur á grunni þeirra. LýðræðisumbæturKallinu um aukið lýðræði hefur verið svarað. Lög um þjóðaratkvæðagreiðslur voru samþykkt og í haust verður kosið til stjórnlagaþings sem hefur það hlutverk að endurskoða stjórnarskránna frá grunni. Reyndar eru þessar lýðræðisumbætur einu ári á eftir áætlun vegna andstöðu Sjálfstæðismanna fyrir alþingiskosningar 2009. Úrbætur fyrir heimili landsinsMál heimila sem búa við erfiða fjárhags- og skuldastöðu í kjölfar efnahagshrunsins hafa verið samfellt til úrvinnslu og ríkisstjórn og Alþingi gripið til fjölmargra ráðstafana. Meðal þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin greip strax til var efling Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, frestun á nauðungarsölum, setning laga um heimild til útgreiðslu séreignarlífeyrissparnaðar, gerð samnings við fjármálastofnanir um samræmd greiðsluerfiðleikaúrræði, tímabundin frysting gengistryggðra lána, hækkun vaxtabóta, setning laga um greiðsluaðlögun og lækkun dráttarvaxta. Síðar voru sett lög um greiðslujöfnun verðtryggðra lána, lög um ábyrgðarmenn og lög um greiðsluaðlögun hafa verið endurbætt. Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna var breytt í embætti umboðsmanns skulda sem vinnur með skuldurum, úrræði fyrir fólk með tvær eignir eru í undirbúningi og fleira. Nú þegar hafa hátt í 100 þúsund einstaklingar nýtt sér þetta á einn eða annan hátt og létt á fjárhagsvanda sínum. Auðvitað telja margir að gera þurfi enn betur, en spurningin hér er ekki um vilja heldur mat á því hvað sé viðráðanlegt við okkar þröngu aðstæður og þá ekki síst fyrir skuldum hlaðinn ríkissjóð. Þá hefur einnig verið mikið að gert til þess að taka á fjárhags- og skuldamálum fyrirtækja, t.d. með gjalddagaaðlögun og auknum sveigjanleika við uppgjör skattaskulda. Örvun atvinnulífsinsRíkisstjórnin hefur staðið í viðamiklum verkefnum við uppbyggingu efnahagslífsins og efnahagsáætlun stjórnvalda er á áætlun, jafnvel rúmlega það. Víkjum að því í síðari greinum. Mikið hefur verið gert til þess að verjast atvinnuleysi og örva atvinnulífið. Má þar fyrst nefna að áhersla hefur verið á að verja störf hjá ríkinu með því að ná fram jöfnuði í ríkisfjármálum með öðrum leiðum en fjöldauppsögnum. Ríkið er stærsti atvinnuveitandi landsins og hefur þessi áhersla skipt sköpum við að halda aftur af atvinnuleysinu. Framundan eru miklar framkvæmdir, til dæmis nýbyggingar Landspítalans, Búðarhálsvirkjun, tvöföldun Suðurlandsvegar o.s.frv.. Ríki og borg ákváðu halda áfram byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu og tryggðu þannig atvinnu um 400 starfsmanna og verkefni fyrir fjölmarga sem að koma. Þá hafa stjórnvöld stóraukið fjármagn í viðhaldsframkvæmdir við opinberar byggingar. Samtals verður varið 3,200 milljónum til slíkra verkefna á árinu 2010. Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna viðhalds- og endurbótaverkefna var hækkuð í 100% og nú hafa sérstakar skattaívilnanir bæst við sem viðbótar kvati. Í framhaldi af þessu hafa stjórnvöld unnið náið með Samtökum iðnaðarins, Alþýðusambandi Íslands og aðildarfélögum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar - og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að verkefninu „Allir vinna." Atvinnuskapandi aðgerðirÍ lok síðasta árs voru samþykkt lög sem bæta stöðu nýsköpunar- og sprotafyrirtækja með skattaívilnum. Vegna þessa er skattaumhverfið á Íslandi fyrir slík fyrirtæki með því besta sem þekkist í heiminum og er áhrifanna þegar farið að gæta. Neikvæðum áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á ferðaþjónustuna á vormánuðum var mætt með kraftmiklu sameiginlegu markaðsátaki. Þúsundir sumarstarfa voru sköpuð með sérstökum átaksverkefnum, hlutaatvinnuleysisbætur teknar upp og gripið til víðtækra aðgerða til að tryggja virkni þeirra sem eru í atvinnuleit, því fátt er meira mannskemmandi en að sitja heima í aðgerðarleysi. Loks hefur allt verið reynt sem mögulegt er til að gera skólum landsins kleift að taka við sem flestum sem vilja nýta tímann til náms meðan núverandi ástand varir. Framfarir til framtíðarEkki má heldur gleyma að fjölmörg framfaramál hafa náð fram að ganga á því eina og hálfa ári sem ríkisstjórnin hefur setið þrátt fyrir erfiðleikana. Það sýnir að stundum er viljinn allt sem þarf. Skal þar fyrst nefna nýtt tekjuskattskerfi sem ver hina tekjulægstu fyrir skattahækkunum og dreifir byrðunum á allt annan og réttlátari hátt en áður. Landið hefur til mikils hagræðis verið gert að einu skattaumdæmi. Þá má nefna ein hjúskaparlög óháð kynhneigð, bann við kaupum á vændi, lokun nektarstaða, hærri grunnframfærslu námslána, skýra og metnaðarfulla stefnu í loftslagsmálum, ákvörðun um að leggja niður óþarfa Varnarmálastofnun og svona mætti lengi telja. Allt tal um að ríkisstjórnin sé ekkert að gera er því einfaldlega rangt og hrein öfugmæli. Ríkisstjórnin hefur þvert á móti verið sérlega starfsöm og fengið miklu áorkað við afar erfiðar aðstæður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Steingrímur J. Sigfússon Tengdar fréttir Landið tekur að rísa! - Grein 4 Í fyrri greinum hefur verið farið yfir orsakir og afleiðingar bankahrunsins, þann árangur sem þegar hefur náðst í glímunni við kreppuna og staða þjóðarbúsins verið greind. Um leið og því ber að fagna sem áunnist hefur er engin ástæða til að draga dul á að mikil og erfið verkefni bíða úrlausnar. Nú verður farið yfir nokkur þau helstu hér innanlands. Þau sem bíða okkar í samskiptum við erlenda aðila verða reifuð síðar. 25. ágúst 2010 06:00 Landið tekur að rísa! - Grein 3 Almenningur þekkir vel af eigin raun hversu mikið högg íslenska hagkerfið hlaut við fall bankanna síðla árs 2008. Stærð þeirra og umsvif ollu því að vandi Íslands varð mun meiri en önnur ríki hafa staðið frammi fyrir af sambærilegum ástæðum. Um orsakir þessa hef ég þegar fjallað í fyrri greinum, en sný mér nú að jákvæðum teiknum sem eru á lofti í íslensku efnahagslífi. 23. ágúst 2010 06:00 Landið tekur að rísa! - Grein 1 Á annasömum tímum hættir eflaust fleirum en höfundi til að dragast niður í úrlausnarefnin, lokast inni við hið hversdagslega amstur daganna. Vill þá farast fyrir að lögð séu niður amboðin og gengið á sjónarhól mannlífs og atburða, skyggnst um og horft jafnt um öxl sem fram á veginn. 19. ágúst 2010 06:00 Mest lesið Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Landið tekur að rísa! - Grein 4 Í fyrri greinum hefur verið farið yfir orsakir og afleiðingar bankahrunsins, þann árangur sem þegar hefur náðst í glímunni við kreppuna og staða þjóðarbúsins verið greind. Um leið og því ber að fagna sem áunnist hefur er engin ástæða til að draga dul á að mikil og erfið verkefni bíða úrlausnar. Nú verður farið yfir nokkur þau helstu hér innanlands. Þau sem bíða okkar í samskiptum við erlenda aðila verða reifuð síðar. 25. ágúst 2010 06:00
Landið tekur að rísa! - Grein 3 Almenningur þekkir vel af eigin raun hversu mikið högg íslenska hagkerfið hlaut við fall bankanna síðla árs 2008. Stærð þeirra og umsvif ollu því að vandi Íslands varð mun meiri en önnur ríki hafa staðið frammi fyrir af sambærilegum ástæðum. Um orsakir þessa hef ég þegar fjallað í fyrri greinum, en sný mér nú að jákvæðum teiknum sem eru á lofti í íslensku efnahagslífi. 23. ágúst 2010 06:00
Landið tekur að rísa! - Grein 1 Á annasömum tímum hættir eflaust fleirum en höfundi til að dragast niður í úrlausnarefnin, lokast inni við hið hversdagslega amstur daganna. Vill þá farast fyrir að lögð séu niður amboðin og gengið á sjónarhól mannlífs og atburða, skyggnst um og horft jafnt um öxl sem fram á veginn. 19. ágúst 2010 06:00
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun