Stóra barnið tryggði Boston sigurinn 11. maí 2009 09:26 Glen Davis fagnar sigurkörfu sinni gegn Orlando í nótt AP
Glen "Big Baby" Davis var reyndist hetja Boston Celtics í nótt þegar hann skoraði sigurkörfu liðsins gegn Orlando Magic um leið og lokaflautið gall. Boston vann þennan æsispennandi leik í Orlando 95-94 og hefur þar með jafnað metin í einvíginu í 2-2. Davis skoraði tvær stórar körfur á lokasprettinum, þar á meðal sigurkörfuna. Hann fékk boltann á vinstri kantinum frá Paul Pierce, sem hikaði ekki að senda á þéttvaxinn félaga sinn. "Gefið mér smá séns hérna. Þetta er í fyrsta skipti sem ég geri eitthvað svona," sagði Davis þegar hann var umkringdur blaðamönnum eins og stórstjarna eftir leikinn. Paul Pierce var atkvæðamestur hjá Boston með 27 stig og þeir Davis og Rajon Rondo skoruðu 21 stig hvor. Rondo hirti 14 fráköst. Hjá Orlando var Dwight Howard atkvæðamestur með 23 stig og 17 fráköst og Rashard Lewis 22 stig. "Þetta er frábært," sagði Paul Pierce hjá Boston, sem virðist skemmta sér manna best í allri dramatíkinni. "Ég var búinn að segja að mér þætti æðislegt veður hérna niðurfrá og því væri ég alveg til í að koma hingað aftur," sagði Pierce. Liðin mætast í Boston á þriðjudagskvöldið og svo aftur í Orlando á fimmtudagskvöldið.
NBA Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Fótbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira