Helena sýndi að hún er traustsins verð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2009 12:30 Helena setti niður tvö mikilvæg vítakost í lokin. Mynd/TCU/Keith Robinson
Helena Sverrisdóttir sýndi enn einu sinni stáltaugar sínar á vítalínunni þegar hún gulltryggði 41-38 sigur TCU á New Mexico í miklum varnarleik í bandaríska háskólaboltanum í nótt. TCU var einu stigi yfir þegar 30 sekúndur voru eftir og Jeff Mittie, þjálfari liðsins, tók þá leikhlé. Mittie setti upp sókn þannig að spilað var upp á Helenu inn í teig og það var síðan brotið á henni 20 sekúndum fyrir leikslok. Helena setti niður bæði vítin og gestirnir í New Mexico náðu síðan ekki að skora úr lokasókn sinni. "Helena var í vandræðum allan leikinn og það gekk lítið upp hjá henni í sókninni en ég sagði henni að við ætluðum samt ekki að hætta að leita til hennar í sókninni. Hún svaraði því vel og sýndi það síðan á vítalínunni á lokasekúndunum að hún er traustsins verð," sagði Jeff Mittie í viðtali við heimasíðu TCU eftir leikinn. Helena var með 9 stig, 7 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta í leiknum en hitti aðeins úr 3 af 13 skotum sínum. Þetta var sjötti sigurleikur TCU í röð sem er lengsta sigurganga liðsins á tímabilinu. Liðið er áfram í 2. sæti í Mountain West deildinni með 11 sigra í 14 leikjum en alls hefur liðið unnið 19 af 27 leikjum tímabilsins.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Sjá meira