Lakers einum leik frá úrslitunum 28. maí 2009 09:18 Lamar Odom lék vel í nótt AP
Los Angeles Lakers vann í nótt 103-94 sigur á Denver í fimmta leik liðanna í úrslitarimmu Vesturdeildarinnar í NBA og leiðir því 3-2 í einvígi liðanna. Lakers var á heimavelli í fimmta leiknum og getur tryggt sér sæti í lokaúrslitum NBA annað árið í röð með sigri í Denver annað kvöld. Leikurinn í nótt var ótrúlega jafn framan af eins og sést á því að staðan var hnífjöfn eftir fyrsta, annan og þriðja leikhlutann. Taugar Lakers-manna héldu svo betur í lokaleikhlutanum sem þeir unnu 27-18. Kobe Bryant skoraði 22 stig fyrir Lakers en fékk meiri hjálp frá aukaleikurum sínum að þessu sinni. Lamar Odom skoraði 19 stig, hirti 14 fráköst og varði 4 skot, en hann hafði að heita má verið í felum síðan í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Pau Gasol skoraði 14 stig, hirti 10 fráköst og varði 5 skot. Hjá Denver var Carmelo Anthony stigahæstur með 31 stig, og Kenyon Martin og Chauncey Billups 12 hvor. Phil Jackson þjálfari Lakers hefur 18 sinnum komist yfir 3-2 í sjö leikja einvígi í úrslitakeppni og hefur unnið 17 þeirra. Eina serían sem hann tapaði af þessum 18 var gegn Phoenix Suns árið 2006.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira