KR í úrslit eftir öruggan sigur á Grindavík 24. janúar 2009 18:39 Jón Arnór Stefánsson
KR-ingar eru komnir í úrslit Subway bikarsins í körfubolta eftir öruggan sigur á Grindvíkingum í vesturbænum í dag 82-70. Benedikt Guðmundsson þjálfari KR tjáði Vísi að hann og lið hans hefðu undirbúið sig betur undir þennan leik en nokkurn annan í vetur og það skilaði sér greinilega í dag. KR-liðið kom gríðarlega vel stemmt til leiks í troðfullu húsinu og hafði yfir 26-12 eftir fyrsta leikhluta, en stífur varnarleikur KR virtist hreinlega slá suðurnesjaliðið út af laginu. Þegar upp var staðið var það fyrsti leikhlutinn sem gerði gæfumuninn fyrir KR því síðustu þrjá leikhlutana vann Grindavík með samtals tveimur stigum. Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur í jöfnu liði KR með 19 stig og 8 fráköst, Fannar Ólafsson skoraði 15 stig og hirti 9 fráköst, Jason Dourisseau (11 frák) og Jakob Örn Sigurðarson skoruðu 14 stig hvor og Helgi Magnússon 13. Hjá Grindavík var Nick Bradford í algjörum sérflokki í sóknarleiknum með 27 stig og 8 fráköst og Brenton Birmingham skoraði 11 stig, en enginn annar leikmaður liðsins skoraði meira en 9 stig. Stemmingin í DHL-höllinni var stórkostleg í dag og engu líkara en komið væri fram í úrslitakeppni. Höllin var troðfull og hitinn eins og í gufubaði. KR-ingar mæta annað hvort Njarðvík eða Stjörnunni í úrslitaleik bikarsins þann 15. febrúar nk.
Dominos-deild karla Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira