Langt síðan Snæfell vann - þegar tímabilið er undir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2009 14:50 Magni Hafsteinsson leikmaður Snæfells. Mynd/Stefán
Snæfell og Stjarnan mætast í kvöld í oddaleik í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. Það lið sem vinnur leikinn sem fram fer í Stykkishólmi er komið í undanúrslit Íslandsmótsins. Snæfellingar mæta Grindavík komist þeir áfram í undanúrslitin en KR-ingar verða mótherjar Stjörnunnar vinni þeir leikinn á eftir sem hefst klukkan 19.15 og verður í beinni á Stöð 2 Sport 2. Snæfellingar eru eins og Stjörnumenn með allt undir. Tap þýðir að liðið er komið í sumarfrí. Það er orðinn langur tími síðan Snæfellsliðið hefur klárað leik í úrslitakeppni þar sem tap þýðir að liðið sé komið í sumarfrí. Snæfellingar unnu síðast leik þegar tímabilið var undir í oddaleik í átta liða úrslitunum á móti KR 2005. Frá þeim tíma hefur Snæfell tapað fjórum slíkum leikjum í röð: Í fjórða leik á móti Keflavík í lokaúrslitum 2005, í oddaleik á móti KR í 8 liða úrslitum 2006, í oddaleik á móti KR í undanúrslitum 2007 og svo í þriðja leik á móti Keflavík í úrslitum í fyrra. Það er þó Snæfelli í hag að nú fá liðið þennan leik á heimavelli en síðustu þrír leikir í þessari stöðu hafa verið útileikir. Eini leikmaður Snæfells sem hefur verið með í öllum þessum fjórum "upp á líf eða dauða" leikjum er Magni Hafsteinsson. Magni hefur skorað 9,8 stig og tekið 4,3 fráköst að meðaltali á 24,8 mínútum í þessum fjórum leikjum. Þjálfarar Snæfellsliðsins í dag, Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson, hafa ekki hitt vel í þeim þremur leikjum sem þeir hafa spilað í úrslitakeppninni undanfarin fjögur ár þar sem tímabilið hefur verið undir. Samanlagt hafa aðeins 25 af 74 skotum þeirra ratað rétta lið sem gerir 33,8 prósent skotnýtingu. Hlynur Bæringsson hefur skorað 15,0 stig og tekið 11,7 fráköst að meðaltali í þremur þessara leikja en hefur aðeins nýtt 33,3 prósent skota sinna. Sigurður Þorvaldsson hefur skorað 10,3 stig og tekið 6,0 fráköst að meðaltali í þremur þessara leikja en hefur eins og Hlynur hitt illa eða bara úr 34,4 prósent skot sinna. Síðustu fjórir leikir Snæfells í úrslitakeppni þegar tímabilið er undir: Lokaúrslit 2008 Keflavík-Snæfell 98-74 (Keflavík vann 3-0) Undanúrslit 2007 KR-Snæfell 76-74 (68-68) (KR vann 3-2) 8 liða úrslit 2006 KR-Snæfell 67-64 (KR vann 2-1) Lokaúrslit 2005 Snæfell-Keflavík 88-98 (Keflavík vann 3-1)
Dominos-deild karla Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira