Tony Fernandes hættur við að kaupa West Ham 22. desember 2009 09:35
Tony Fernandes er hættur við að kaupa West Ham en á tímabili leit út fyrir að hann myndi festa kaup á 51% hlut í liðinu. Voru samningaviðræður hafnar og Fernandes búinn að hitta m.a. Gianfranco Zola framkvæmdastjóra liðsins.Þetta kemur fram í blaðinu Evening Standard í dag. Fernandes er fjárfestir frá Malasíu og á meðal annars flugfélagið Air Asia. Hann hefur þar að auki nýlega fest kaup á Lotus kappakstursliðinu og ætlar með það í Formúlu 1 keppnina á næsta keppnistímabili.Aðspurður um kaupin á West Ham segir Fernandes að hann muni ekki kaupa hlut í liðinu í náinni framtíð. „Ég á fullt í fangi með að koma Formúlu 1 liðinu á koppinn svo að ég kaupi ekki í West Ham," segir Fernandes í samtali við blaðið.Fernandes er mikill stuðningsmaður West Ham og hann hefur áhyggjur af framtíð liðsins. Segir hann að West Ham eigi skilið öfluga eigendur eftir að hafa verið illa stjórnað af fyrri eigendum sem skildu við liðið í miklum skuldum.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira