Í Stjórnarráðinu Bergsteinn Sigurðsson. skrifar 5. maí 2009 06:00 Jóhanna feykir upp dyrunum og drífur sig óðamála inn. „Hæ, Steingrímur. Fyrirgefðu hvað ég er sein, var stoppuð af fréttamönnum frammi." Steingrímur svarar án þesss að líta upp úr dagblaðinu. „Ekkert mál, ekki eins og okkur liggi á. Hvað sagðirðu þeim annars?" Jóhanna hengir rauða jakkann upp á snaga. „Bara það sama og síðast, að okkur þokaði vel áfram í stjórnarmyndunarviðræðum en ég gæti ekkert gefið upp fyrr en endanlega niðurstaða lægi fyrir. Og svo minnti ég þá á að það er ennþá starfandi ríkisstjórn." Steingrímur lítur upp. „Gleypa þeir enn þá við því?" Jóhanna skrúfar tappann af vatnsflösku. „Ja, það er kominn kurr í suma. En kannski hljóp ég á mig þegar ég sagði eitthvað á þá leið að ég byggist við að verð á íbúðarhúsnæði ætti eftir að ná fyrri hæðum..." Steingrímur veðrast upp. „Jóhanna þó! Töluðum við ekki um að vera hóflega óraunsæ í yfirlýsingum. Viltu ekki bara lofa líka að innflutningur á nýjum bílum og sala á fellihýsum eigi eftir að komast aftur í fyrra horf!" Jóhanna afsakar sig. „Ég veit, missti þetta bara út úr mér. Hvað átti ég að gera, segja þeim satt? Að það séu allir líkur á að margir eigi eftir að verða gjaldþrota og missa húsnæðið áður en okkur tekst að skapa nógu stöðugt efnahagsumhverfi sem gerir heimilunum kleift að rétta úr kútnum? Held mér hafi hins vegar tekist að kaupa okkur tíma fram yfir helgi. Sem betur fer dró þessi vatnsgreiddi athyglina frá okkur með nýaldarkuklinu sínu í nokkra daga." Steingrímur róast. „Já, þú meinar Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, og tillögur hans um niðurfærslu íbúðarlána?" Jóhanna flissar. „Nei, þessi var aðeins jarðtengdari en Gísli. Æ, hvað heitir hann, leikstjórinn þarna, David eitthvað, sá sem gerði þarna sjónvarpsþættina, Tvídranga. Voða skrýtið allt saman, dvergar að vanga við hross og svoleiðis. Sýndir á Stöð 2 upp úr 1990." Steingrímur fussar. „Stöð 2 náðist ekki í Þistilfirði upp úr 1990 og mætti svo enn vera mín vegna." Jóhanna maldar í móinn. „Þú ættir samt að kíkja á myndirnar hans Steingrímur. Ein þeirra fjallar til dæmis um gamlan mann sem ekur þvert og endilangt yfir Bandaríkin á sláttuvél." Steingrímur mildast í fasi og verður hugsi á svip. „Hmm, það hljómar eins og góð sláttuvél." Jóhanna settur upp seiðandi svip og lækkar raustina. „Steingrímur, veistu hvar er hægt að fá svoleiðis sláttuvél? Hann hristir höfuðið. Jóhanna hallar sér fram og hvíslar í eyra hans. „Í Evrópusambandinu." Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson Skoðun Halldór 20.09.2025 Halldór Heimur á heljarþröm? Innflutningur á hatursorðræðu til Íslands! Arna Magnea Danks Skoðun Móðir í Breiðholti hjólar 5.000 kílómetra Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Eru Íslendingar feigir? Olíuvinnsla! Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Hægfara endalok sjónvarps útsendinga fyrir móttöku á loftneti á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Ástæðan fyrir því að við þurfum möguleika á dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Einföld og skiljanleg kerfi sem virka fyrir fólk og fyrirtæki Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal Skoðun Sterkara framhaldsskólakerfi Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun
Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson Skoðun
Hægfara endalok sjónvarps útsendinga fyrir móttöku á loftneti á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun
Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal Skoðun
Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson Skoðun
Hægfara endalok sjónvarps útsendinga fyrir móttöku á loftneti á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun
Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal Skoðun