KR-konur eru Powerade-meistarar í kvennakörfunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2009 13:46 Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, með bikarinn. Mynd/Valli
KR var að tryggja sér sigur í Powerade-bikar kvenna í Laugardalshöllinni þegar liðið vann 4 stiga sigur á Hamar, 67-63, eftir spennandi leik. KR hafði ekki unnið þessa keppni í níu ár eða frá árinu 2000. KR var með frumkvæðið framan af leik, 14-8 yfir eftir fyrsta leikhluta og 35-25 yfir í hálfleik. Hamarsliðið átti hinsvegar frábæran þriðja leikhluta sem liðið vann 22-10 og komst yfir í leiknum. Hamar missti Kristrúnu Sigurjónsdóttur útaf með 5 villur þegar rúmar 8 mínútur voru eftir af leiknum en staðan var þá 52-48 fyrir Hamar. KR skoraði næstu þrettán stig og komst yfir 61-52. Hamar minnkaði muninn en náði ekki að brúa bilið og KR vann fjögurra stiga sigur. Reynsluboltarnir Hildur Sigurðardóttir og Signý Hermannsdóttir skoruðu 13 af 17 stigum sínum í lokaleikhlutanum. Jenny Pfeiffer-Finora var stigahæst hjá KR með 21 stig, Margrét Kara Sturludóttir var með 13 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar og Signý Hermannsdóttir var með 10 stig, 11 fráköst og 5 varin skot. Koren Schram var með 15 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar hjá Hamar, Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 12 stig og Sigrún Ámundadóttir var með 12 stig, 12 fráköst og 4 stoðsendingar.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Enski boltinn Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu Fótbolti „Ég er mjög þreyttur“ Íslenski boltinn „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Fótbolti Leiknir selur táning til Serbíu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals Sjá meira