Doug Collins tekur aftur við Chicago Bulls 29. maí 2008 17:58 Doug Collins þjálfaði Michael Jordan hjá Washington árið 2002 NordcPhotos/GettyImages
Forráðamenn Chicago Bulls í NBA deildinni hafa gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara og réðu til sín gamlan kunningja, Doug Collins. Sá þjálfaði liðið á fyrstu árum Michael Jordan í deildinni fyrir 20 árum síðan. Collins þjálfaði Michael Jordan líka þegar hann tók skóna fram að nýju árið 2002 með Washington Wizards, en hann þjálfaði líka Detroit Pistons um tíma. Collins hefur starfað sem sjónvarpsmaður á TNT undanfarin ár og er einn allra besti leikrýnirinn í bransanum. Þjálfaranum verður fengið að reisa lið Chicago við eftir dapurt gengi á síðustu leiktíð, en hann getur huggað sig við að liðið á fyrsta valrétt í nýliðavalinu í sumar. Collins hefur hingað til náð að snúa við gengi liða sem hann hefur tekið við, en Chicago bætti sig um 10 sigurleiki árið eftir að hann tók við því á sínum tíma og bæði lið Detroit og Washington bættu sig um 18 sigurleiki þegar hann tók við. Collins sagði fyrir skömmu að hann hefði engan áhuga á að þjálfa aftur, en gott samband hans við forseta og forráðamenn Bulls hefur væntanlega haft mikið að segja um ákvörðun hans að þessu sinni. Hann þjálfaði Chicago á árunum 1986-89, en var rekinn þrátt fyrir að koma liðinu í úrslit Austurdeildarinnar. Það var svo Phil Jackson sem tók við af Collins hjá Chicago árið 1989 og hann stýrði liðinu til sex meistaratitla til ársins 1998.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira