Pierce er verðmætasti leikmaðurinn 12. mars 2008 10:35 Garnett hefur miklar mætur á félaga sínum Paul Pierce NordcPhotos/GettyImages
Kevin Garnett var einn þeirra sem framan af vetri voru taldir líklegastir til að verða útnefndir verðmætasti leikmaðurinn í NBA deildinni. Sá sem hlaut nafnbótina árið 2004 er hinsvegar ekki í vafa um hver eigi þann heiður skilinn í vor. Garnett fékk þessa nafnbót þegar hann lék með Minnesota árið 2004, en meiðsli hafa hægt nokkuð á honum undanfarnar vikur. Hann sjálfur er ekki í neinum vafa um hver fær sitt atkvæði - félagi hans Paul Pierce hjá Boston. "Paul er minn verðmætasti leikmaður í ár. Hann gerir svo mikið af litlum hlutum þarna úti sem fólk tekur ekki eftir. Það eru ekki nema þrír sóknarmenn í þessari deild sem ég hef gaman af að sjá spila sóknarleikinn og hann er einn þeirra. Hann lætur þetta líta út fyrir að vera svo auðvelt og hefur endalaust sjálfstraust. Ég sagði mönnum að það væru nokkrar ástæður fyrir því að ég ákvað að koma hingað í sumar - og Paul var sannarlega ein þeirra," sagði Garnett í samtali við Boston Globe. Pierce er stigahæsti leikmaður Boston með 20,3 stig í leik á aðeins 37 mínútum. Hann hirðir þar að auki 5,3 fráköst, gefur 4,6 stoðsendingar og stelur 1,3 boltum í leik. Hann er eini leikmaðurinn sem hefur spilað alla leiki Boston í vetur. "Þetta er líklega eitt besta tímabilið mitt á ferlinum," sagði Pierce í sömu grein, en hann er á sínu 10. ári í deildinni. "Kannski ekki hvað varðar tölfræði, en þetta er samt eitt af þeim bestu," sagði Pierce. Boston hefur verið með besta vinningshlutfall allra liða í NBA deildinni í allan vetur og fátt virðist geta komið í veg fyrir að liðið verði með heimavallarrétinn alla úrslitakeppnina.
NBA Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira