Stýrimaður smyglskútunnar dæmdur fyrir fleiri brot 25. febrúar 2008 15:48 Bíll þeirrar gerðar sem Guðbjarni reynsluók í rúma viku.
Guðbjarni Traustason sem dæmdur var nú nýverið í Pólstjörnumálinu svokallaða til sjö og hálfs árs fangelsisvistar, var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur fyrir brot á umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og fyrir nytjastuld. Guðbjarna var hins vegar ekki gerð refsing í málinu þar sem um var að ræða hegningarauka við Pólstjörnudóminn. Guðbjarni var ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni 0,45 grömm af kókaíni fyrir utan skemmtistaðinn Nasa við Austurvöll. Hann var einnig ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið próflaus á Sandgerðisvegi á allt að 131 kílómetra hraða og fyrir að hafa ekið próflaus í Sandgerði rúmum mánuði síðar. Þá var Guðbjarni fundinn sekur um að hafa fengið Renault Traffic sendibifreið til reynsluaksturs hjá B&L á Grjóthálsi. Guðbjarni skilaði bílnum hins vegar aldrei og fannst bifreiðin mannlaus á Garðskagavegi tæplega viku síðar. Guðbjarni játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var það mat dómara að brotin hefðu ekki orðið til þyngingar í Pólstjörnudómnum. Honum var því ekki gerð sérstök refsing í málinu.
Pólstjörnumálið Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira