Gengi Existu og SPRON aldrei lægra 23. janúar 2008 10:17 Lýður og Ágúst Guðmundssyni, stærstu hluthafar í Existu.
Gengi bréfa í Existu féll um 5,3 prósent og SPRON um tæp 3,5 prósent skömmu eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag en gengi félaganna hefur aldrei verið lægra. Fallið kemur í kjölfar umfjöllunar sænska bankans Enskilda um finnska tryggingafélagið Sampo. Þar segir að eiginfjárstaða Existu, sem á 20 prósent í Sampo, sé verri en af sé látið. Nemi hún jafnvirði um 35 milljörðum króna og geti svo farið að félagið verði að selja bréf sín í Sampo og norska fjármálafyrirtækinu Storebrand, jafnvel með afslætti. Í umfjölluninni er miðað við eigið fé Existu í lok september og frá því dregin öll lækkun í hlutabréfaverði eigna félagsins frá hæstu gildum, bæði hér heima og erlendis, sem í flestum tilfellum voru um mitt síðasta ár en það hafði lækkað nokkuð undir haust. Gengi allra fjármálafyrirtækjanna sem skráð eru í Kauphöllina hefur lækkað á sama tíma á bilinu eitt til 2,5 prósent. Á sama tíma hefur gengi Eimskipafélagsins hækkað um 3,7 prósent, Atlantic Petroleum um tæp 2,5 og Teymis um tæp 0,7 prósent. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,8 prósent og stendur hún í 5.193 stigum sem þýðir að öll hækkun hennar síðastliðin tvö ár er gufuð upp og stendur á svipaðri syllu og í byrjun desember árið 2005.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira