Lakers hélt lífi í úrslitunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. júní 2008 10:07 Kobe Bryant og félagar höfðu betur í nótt. Nordic Photos / Getty Images
LA Lakers náði í nótt að minnka muninn í 3-2 í úrslitarimmu liðsins gegn Boston Celtics í NBA-deildinni með sigri í fimmta leik liðanna í nótt, 103-98. Lakers vann því tvo leiki á heimavelli en tapaði einum. Næsti leikur fer fram í Boston þar sem Celtics komust í 2-0 í einvíginu. Liðið hefur nú tvö tækifæri til að tryggja sér titilinn á heimavelli. Þar að auki hefur ekkert lið unnið NBA-meistaratitilinn eftir að hafa lent 3-1 undir í úrslitarimmunni. Lakers á því erfitt verkefni fyrir höndum í Boston en sjötti leikurinn fer fram á fimmtudagskvöldið. Rétt eins og í síðasta leik náði Lakers vænri forystu strax eftir fyrsta leikhluta, 39-22. Kobe Bryant skoraði fimmtán stig í leikhlutanum en náði sér hins vegar ekki á strik eftir það. Alls skoraði hann 25 stig í leiknum. En rétt eins og í síðasta leik náði Boston að minnka forystuna verulega en Paul Pierce minnkaði muninn í tvö stig þegar rúm mínúta var til leiksloka. Lokaspretturinn var spennandi en Lakers náði að halda forystuna allt til loka þó svo að Eddie House setti niður þriggja stiga körfu þegar fjórtán sekúndur voru til leiksloka. Kobe Bryant var þá nýbúinn að setja niður troðslu og Derek Fisher kláraði leikinn af vítalínunni. Lamar Odom skoraði 20 stig fyrir Lakers og tók ellefu fráköst. Pau Gasol var með nítján stig og þrettán fráköst. Hjá Boston fór Pierce á kostum og skoraði 38 stig, gaf átta stoðsendingar og tók sex fráköst. Ray Allen var með sextán stig og Kevin Garnett þrettán og fjórtán fráköst. Aðrir leikmenn liðsins voru undir tíu stigum.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira