Þúsundasti sigur Sloan með Jazz 8. nóvember 2008 07:45 219 þjálfarar í NBA hafa fengið að taka pokann sinn á þeim tíma sem Sloan hefur stýrt Jazz NordicPhotos/GettyImages
Jerry Sloan þjálfari Utah Jazz stýrði liði sínu til sigurs í þúsundasta skipti á ferlinum þegar það lagði Oklahoma Thunder í nótt. Ferill Sloan hjá Utah spannar nú tvo áratugi og er hann fyrsti þjálfarinn í sögu NBA deildarinnar til að vinna þúsund leiki með sama liðinu. Næstur á eftir honum í þeim efnum er Red Auerbach heitinn sem stýrði Boston til 795 sigra á sínum tíma. Fæstir þjálfarar í NBA deildinni ná því að sitja hjá sama liðinu í heilt kjörtímabil hjá forseta Bandaríkjanna, en Sloan hefur gert talsvert betur en það. Hann hefur verið þjálfari Jazz út kjörtímabil feðga á forsetastól. Sloan tók við liði Utah í desember árið 1988, eða um það bil mánuði áður en George Bush eldri tók við forsetaembætti í Bandaríkjunum. Bill Clinton leysti hann síðar af hólmi og eftir nokkrar vikur lætur svo George Bush yngri af embætti. Ljóst er að Sloan mun enn sitja í þjálfarastólnum hjá Utah þegar Barack Obama tekur við embætti sínu. Þess má til gamans geta að yngsti leikmaður Utah Jazz var ekki fæddur þegar Sloan tók við liðinu á sínum tíma. Hann hefur stýrt liðinu í úrslitakeppnina 17 sinnum og 16 ár í röð (1988-2004) var liðið með betra en 50% vinningshlutfall. Það hafa verið 219 þjálfaraskipti í NBA síðan Sloan tók við Jazz. Sloan vann fyrstu 94 sigra sína sem þjálfari þegar hann var hjá Chicago Bulls áður en hann tók við Utah en aðeins fjórir þjálfarar í sögu NBA hafa unnið fleiri leiki á ferlinum - þeir Lenny Wilkens, Don Nelson og Pat Riley.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira