Olíuverð lækkar - í samræmi við styrkingu bandaríkjadals 5. september 2008 11:49 Olíuborpallur.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað lítillega í dag. Þetta er í samræmi við styrkingu á gengi bandaríkjadals gagnvart helstu myntum, þar á meðal íslensku krónunni. Þá spilar inn í verðþróunina minnkandi eftirspurn eftir olíu og eldsneyti auk þess sem olíuvinnsla á olíuvinnslustöðvum við Mexíkóflóa er komin á fullt skrið. Olíufélög sem vinna olíu í og við flóann sendi starfsfólk sitt á brott og skrúfaði fyrir olíuvinnsluna áður en fellibylurinn Gústav fór yfir en óttast var að hann gæti valdið miklu tjóni. Af því varð ekki. Verð á olíu, sem afhent verður í næsta mánuði, hefur nú lækkað um 1,39 dali og stendur nú í kringum 106,5 dali á tunnu. Olíuverði fór hæst í rúma 147 dali á tunnu í júlí og hefur því lækkað um 40 dali síðan þá. Það jafngildir um28 prósenta lækkun. Samtök olíuútflutningsríkja (OPEC-ríkin) funda um olíumarkaðinn á þriðjudag í næstu viku. Forsvarsmenn samtakanna hafa miklar áhyggjur af verðlækkuninni síðustu vikurnar. Fari olíutunnar við 100 dala markið þykir afar líklegt að þeir muni draga úr olíuvinnslu til að sporna gegn frekari verðlækkun á olíudropanum. Gerist það má reikna með að olíuverðið stígi upp á ný, að sögn bandarísku fréttastofunnar CNN.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira