Ginobili þarf í uppskurð 1. september 2008 10:15 Ginobili er 31 árs gamall og skoraði tæp 18 stig að meðaltali í leik síðasta vetur NordicPhotos/GettyImages
Argentínski bakvörðurinn Manu Ginobili hjá San Antonio Spurs mun gangast undir uppskurð á næstu dögum eftir að hafa meiðst í undanúrslitaleik Ólympíuleikanna á dögunum. Þetta eru slæm tíðindi fyrir San Antonio Spurs, því Ginobili er algjör lykilmaður í sigursælu liði Spurs. Hann er meiddur í vinstri hæl og gert er ráð fyrir því að hann verði í að minnsta kosti sex vikur að jafna sig. Þessi sömu meiðsli gerðu Argentínumanninum sterka lífið leitt í úrslitakeppni NBA í vor og lögðust forráðamenn San Antonio gegn því að hann gæfi kost á sér á Ólympíuleikana með landsliði sínu. Ginobili lét þær óskir sem vind um eyru þjóta og ótti forráðamanna Spurs varð að veruleika í undanúrslitaleik Ólympíuleikanna þegar Ginobili haltraði af velli meiddur í undanúrslitaleiknum - einmitt gegn liði Bandaríkjanna. Ginobili var þegar þar var komið við sögu stigahæsti leikmaðurinn á Ól, en hann gat ekki spilað bronsleikinn vegna meiðsla sinna. Nú hefur verið staðfest að hann muni fara undir hnífinn í Los Angeles í vikunni, en meiðsli hans eru ekki sögð alvarlegri en þau sem hrjáðu hann í vor. Það breytir því ekki að Ginobili verður tæplega orðinn heill til að taka þátt í æfingabúðum San Antonio í haust, en ekki verður endanlega hægt að segja til um hvenær hann getur snúið aftur fyrr en eftir uppskurðinn. Ginobili var kjörinn besti varamaðurinn í NBA deildinni síðasta vetur og hefur verið algjör lykilmaður í sigursælu liði San Antonio síðustu ár, en liðið varð NBA meistari með hann innanborðs árin 2003, 2005 og 2007.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira