Smyglskútugengið senn úr einangrun 15. október 2007 15:07
Fimm menn sem grunaðir eru um aðild að Fáskrúðsfjarðarmálinu svokallaða hafa í dag verið færðir í héraðsdóm til þess að staðfesta fyrir dómi skýrslur sem lögregla hefur tekið af þeim. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá 21. september. Þrír þeirra voru gripnir á Fáskrúðsfirði og tveir á suðvesturhorninu eftir að um 60 kíló af fíkniefnum, amfetamín, e-pilluduft og e-pillur, fundust í skútu sem tveir mannanna komu á til Fáskrúðsfjarðar þann dag. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, verður að líkindum lokið við að staðfesta skýrslutökur af fimmmenningunum fyrir dómi í dag en fjögurra vikna gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim rennur út á fimmtudag. Með því að staðfesta skýrslurnar komast mennirnir hugsanlega úr einangrun en þar hafa þeir dvalið hingað til, til þess að geta ekki borið saman bækur sínar í málinu. Aðspurður segir Friðrik Smári að ekki sé búið að taka ákvörðun um það hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum en hann telur það ekki ólíklegt. Hann segir enn fremur ómögulegt að segja hvenær rannsókn málsins lýkur en lögreglumenn hafa meðal annars farið til Noregs, Færeyja og Danmerkur í tengslum við rannsóknina. Alls sitja sex manns í gæsluvarðhaldi vegna málsins, fimm hér á landi sem fyrr segir og einn í Færeyjum. Auk 60 kílóa af fíkniefnum sem fundust í skútunni á Fáskrúðsfirði fundu lögreglumenn tvö kíló af amfetamíni við húsleit í Færeyjum.
Pólstjörnumálið Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira