Sektaður fyrir að setja ÓL fatlaðra 21. september 2007 19:09 Yao Ming NordicPhotos/GettyImages
Kínverski risinn Yao Ming hjá Houston Rockets gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja milljón króna sekt frá félaginu þar sem hann mun missa af fyrstu tveimur dögum liðsins í æfingabúðum sem hefjast þann fyrsta næsta mánaðar. Ólympíuleikar fatlaðra hefjast í Shanghai í Kína þann 1. október og hefur Ming lofað sér að taka þátt í opnunarathöfninni þar sem hann hefur verið skipaður sérstakur sendiherra leikanna. Þetta gerir hann í óþökk við forráðamenn Rockets í NBA deildinni. Æfingabúðir í NBA hefjast um mánaðamótin og er fyrsti dagurinn sérstakur fjölmiðladagur, þar sem forráðamenn deildarinnar krefjast þess að hver einasti fulltrúi liðanna mæti sé þess kostur. Félögin í NBA beita sektum sem fara yfir 20,000 dollara á leikmenn sem ekki mætta á fjölmiðladaginn og þá liggur 2,500 dollara sekt við því að skrópa á fyrstu æfingu og 5,000 dollara sekt fyrir hvern dag eftir það í æfingabúðunum. Í versta falli gæti það því kostað Yao hátt í tvær milljónir að skrópa í æfingabúðirnar. Talsmaður Houston segir að Yao Ming hafi löngu verið gerð grein fyrir afleiðingum þátttöku sinnar í Ólympíuleikum fatlaðra. Miðherjinn sjálfur hefur harmað að missa úr tvo daga af æfingabúðunum en segist ekki geta svikið skuldbindingu sína í heimalandinu og ætlar að leggja hart að sér við að vinna upp tapaðan tíma með félögum sínum þegar hann snýr aftur til æfinga með Rockets. Houston hefur fengið til sín nýjan þjálfara, Rick Adelman, og nokkra nýja leikmenn í sumar og því eru spennandi tímar framundan hjá Texas-liðinu.
NBA Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira