LME skoðar yfirtöku á Stork-samstæðunni 27. ágúst 2007 13:26 Árni Oddur Þórðarsson, framkvæmdastjóri Eyris Invest og stjórnarformaður Marels, ræðir við Hörð Arnarson, forstjóri Marel Food Systems. Mynd/Anton
Marel hefur hug á að kaupa allt hlutafé hollensku iðnsamsteypunnar Stork en ekki einungis matvælavélavinnsluhluta hennar. Þetta kom fram á hluthafafundi í Stork sem fram fór í dag. Maarten Muller, lögmaðurinn LME eignarhaldsfélags, sem Marel á fimmtungshlut í á móti Eyri Invest og Landsbankanum, sagði félagið skoða alla möguleika og væri yfirtökutilboð einn þeirra. LME hefur aukið hratt við hlut sinn í Stork og fer nú með rúm 32 prósent hlutabréfa í samstæðunni. Félagið, sem hefur frá því í fyrra leitast eftir því að kaupa matvælavinnsluvélahluta Stork, hefur frá upphafi verið mótfallið 1,5 milljarða evra yfirtökutilboði breska fjárfestingasjóðsins Candover í samstæðuna. Tilboðið jafngildir 47 evrum á hlut eða rúmum 133 milljörðum íslenskra króna. Gengið hefur hækkað nokkuð síðan það var lagt fram í júní en stendur nú í 47,49 evrum á hlut. Að sögn fréttastofu Reuters er yfirtökutilboðs frá LME og Marel í Stork ekki að vænta fyrr en eftir 4. september næstkomandi en þá rennur tilboð Candover út. Ætla má að miðað við gengi Stork í dag nemi markaðsverðmæti hlutar LME í félaginu rúmum 43 milljörðum íslenskra króna.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira