Orlando fjárfestir fyrir 12 milljarða 12. júlí 2007 19:33 Rashard Lewis hefur nægar ástæður til að brosa enda margfaldur milljarðamæringur NordicPhotos/GettyImages
Forráðamenn NBA liðsins Orlando Magic hafa ekki setið auðum höndum undanfarna daga og fjárfesta nú grimmt. Í dag skrifaði miðherjinn Dwight Howard undir nýjan samning við félagið sem sagður er vera til fimm ára og upp á um 85 milljónir dollara. Þar áður hafði félagið gert samning við framherjann Rashard Lewis sem það fékk frá Seattle á dögunum og hann hefur undirritað samning til 6-7 ára sem færir honum hátt í 120 milljónir dollara. Þetta þýðir að félagið hefur fjárfest fyrir rúmlega 12 milljarða króna á nokkrum dögum og ljóst að pressan á þá Howard og Lewis verður mikil að standa sig á næstu árum. Howard er aðeins 21 árs gamall og skoraði 17,6 stig að meðaltali í leik síðasta vetur, hirti 12,3 fráköst og varði 1,9 skot. Hann er enn nokkuð hrár sóknarlega, en er mikill frákastari og naut að burðum. Rashard Lewis er nú kominn í Austurdeildina eftir að hafa leikið með Seattle allan sinn feril. Hann átti sitt besta ár til þessa á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði rúm 22 stig í leik. Lewis hefur skorað flestar þriggja stiga körfur allra leikmanna í sögu Seattle, eða tæplega 1000 slíkar. Hann er 27 ára gamall. Orlando hefur verið eitt af duglegri liðunum á leikmannamarkaðnum í sumar en nú er útlit fyrir að framherji liðsins Darko Milicic sé á leið til Memphis Grizzlies.
NBA Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira