Afkoma ríkissjóðs umfram væntingar 7. júní 2007 16:50 Úr Smáralind. Greiningardeild Kaupþings segir að vísbendingar séu um að einkaneysla sé að taka við sér.
Afkoma ríkissjóðs var umfram áætlanir fjárlaga á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 36,7 milljarða króna á tímabilinu, sem er um 12,4 milljörðum meira en í fyrra. Hagstæða afkomu má rekja til aukinna tekna sem voru 149 ma.kr. samanborið við 120 milljarða samkvæmt fjárlögum. Heildargjöld ríkissjóðs á tímabilinu námu 113,9 milljörðum króna sem er um tveimur milljörðum minna en gert var ráð fyrir í áætlunum fjárlaga Innheimtar tekjur námu 149 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins en það er rúmum 24 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Skattar á vöru og þjónustu, neysluskattar, námu 62 milljörðum. Það er níu prósenta aukning að raunvirði frá síðasta ári. Greiningardeild Kaupþings segir í Hálffimmfréttum sínum í dag að það vekji athygli að innheimtar tekjur neysluskatta eru að aukast þrátt fyrir skattalækkanir sem tóku gildi í byrjun mars á þessu ári. Virðist því enn vera töluverður vöxtur í neyslu heimila og nýjustu vísbendingar virðist frekar benda til þess að vöxturinn sé að taka við sér á ný fremur en að hægja sé á neyslugleði heimila, að sögn greiningardeildar Kaupþings.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira