Afkoma Marel yfir væntingum 8. maí 2007 15:40 Hörður Arnarson, forstjóri Marel. Mynd/E.Ól
Marel skilað hagnaði upp á eina milljón evra, jafnvirði 86,5 milljóna íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er tæplega tvöfalt betri afkoma en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam 551 þúsund evrum, tæpum 47 milljónum íslenskra króna. Þetta er talsvert betri afkoma en greiningardeildir viðskiptabankanna spáðu. Bankarnir spáðu því að Marel myndi skila tapi á fjórðungnum allt frá 1,1 til 1,5 milljónum evra. Í uppgjöri Marels kemur fram að sala Marel Food Systems á fyrsta ársfjórðungi hafi numið 72,2 milljónum evra samanborið við 32,5 milljónir evra í fyrra. Það er 123 prósenta betri sala en á sama tíma í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 3,2 milljónum evra, 277 milljónum króna, í ár samanborið við 500 þúsund evrur, rúmar 43 milljónir króna í fyrra. Handbært fé Marels í lok tímabils nam 58,2 milljónum evra, rúmum fimm milljörðum króna. Eigið fé nam 146 milljónum evra, rúmum 12,6 milljörðum króna. Þá var eiginfjárhlutfall 39,2 prósent í lok fjórðungsins. Haft er eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Marels, í tilkynningu frá fyrirtækinu að árið hafi farið vel af stað og hafi mikilvægir áfangar náðst í endurskipulagningu sölu og markaðskerfa fyrirtækja í eigu Marel. Uppgjör Marels
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira