Tap Össurar 184 milljónir króna 2. maí 2007 09:06
Stoðtækjafyrirtækið Össur skilaði 2,7 milljóna dala tapi á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það jafngildir 184 milljóna króna tapi á tímabilinu samanborið við tap upp á 571 þúsund dali, 36,6 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Tekjur voru í takt við væntingar greiningardeilda viðskiptabankanna. Í uppgjöri Össurar kemur fram að sala jókst um 34 prósent frá fyrsta ársfjórðungi í fyrra og nam 80,4 milljónum króna, jafnvirði 5,5 milljörðum íslenskra króna. Þá nam rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og skatta (EBITDA) 10,2 milljónum dala, 698 milljónum íslenskra króna, sem er 19 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. EBITDA-hlutfall nam 12,7 prósentum og lækkar úr 14,3 prósentum á fyrsta ársfjórðungi á síðasta ári. Haft er eftir Jóni Sigurðssyni, forstjóra Össurar, að fyrirtækið hafi farið í umfangsmikla endurskipulagningu á sölukerfinu í Ameríku í febrúar sem hafi verið liður í lokaáfanga samþættingar á stuðningsfyrirtækjunum sem Össur hefur keypt þar. „Þetta kemur niður á söluvexti og rekstrarniðurstöðum til skemmri tíma litið. Sé litið til lengri tíma munu breytingarnar hafa verulega jákvæð áhrif. Það eru krefjandi tímar framundan en við sjáum nú fyrir endan á þessu tímabili og hlökkum til þess að uppskera árangurinn. Í Evrópu sjáum við hægan viðsnúning; niðurstöður eru sérlega ánægjulegar í Bretlandi og í Þýskalandi, segir hann.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira