Novator að yfirgefa símamarkaðinn 28. apríl 2007 12:45 MYND/Vilhelm
Erlendir fjölmiðlar herma að Novator, fjárfestingafélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hafi selt 10,8 prósenta hlut sinn, um helmingseign sína, í gríska símafélaginu Forthnet til þarlendra stofnanafjárfesta og annarra aðila. Novator er sagt vera að hverfa af símamarkaði í A-Evrópu. Að sögn fréttavefs bandaríska vikuritsins Forbes nemur sölugengi hlutarins 10,5 evrum á hlut sem jafngildir því að markaðsverðmæti hans hlaupi á rétt rúmum 43 milljónum evra, jafnvirði tæpra 3,8 milljarða íslenskra króna. Það er engu að síður 8,6 prósentum undir lokagengi Forthnet á fimmtudag. Forbes hefur eftir heimildamönnum sem tengjast Forthnet að sala Novator sé liður í áætlunum félagsins að hverfa af símamarkaði á meginlandi Evrópu. Þannig er 65 prósenta hlutur félagsins í búlgarska símafélaginu BTC til sölu. Er gert ráð fyrir að söluferlinu ljúki um miðjan júní en markaðsverðmæti hlutarins hleypur á 146,3 til 173,8 milljörðum króna. Novator kom fyrst inn í hluthafahóp Forthnet í september árið 200 en hefur verið að losa sig við hluti sína í félaginu síðan í janúar þegar Novator seldi 17,64 prósent af hlutabréfaeign sinni. Eftir söluna nú á Novator 10,2 prósent í Forthnet.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira