Hagnaður Bakkavarar 1,2 milljarðar króna 26. apríl 2007 16:09 Lýður og Ágúst Guðmundssynir, stofnendur og stjórnendur Bakkavarar. Mynd/Haraldur Jónasson
Bakkavör Group skilaði 1,2 milljarða króna hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Afkoman á fjórðungnum er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna. Í uppgjöri Bakkavarar fyrir tímabilið kemur fram að rekstrarhagnaður (EBIT) hafi numið 3,3 milljörðum króna sem er 37 prósenta aukning frá síðasta ári. Rekstrarhagnaður fyrir skatta og gjöld (EBITDA) nam á sama tíma 4,5 milljörðum króna, sem er 28 prósenta aukning. Þá nam velta 45,1 milljarði króna. Eigið fé Bakkavarar nam 31,8 milljörðum króna samanborið við 31,1 milljarð á sama tíma í fyrra og nemur tveggja prósenta aukningu. Eiginfjárhlutfall nam 18,6 prósentum sem er 0,4 prósentustigum meira en fyrir ári. Arðsemi eigin fjár nam 16,2 prósentum á tímabilinu samanborið við 18,1 prósents arðsemi í fyrra. Haft er eftir Ágústi Guðmundssyni, forstjóra Bakkavarar, að fjórðungurinn lofi góðu. Sala í Bretlandi sé góð haldi félagið áfram að styrkja stöðu sína á meginlandi Evrópu. „Við höfum metnaðarfull áform um framtíðarvöxt og munum leggja áherslu á þróun félagsins á nýjum mörkuðum. Tækifærin eru mikil en búist er við að markaðurinn fyrir ferskar tilbúnar matvörur muni vaxa um 20 prósent í vestur Evrópu á næstu fjórum árum og um 30 prósent í Kína," segir hann. Uppgjör Bakkavarar
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira