Afkoma Árborgar langt umfram áætlanir 26. apríl 2007 10:15 MYND/GVA
Sveitarfélagið Árborg skilaði 83,6 milljóna króna rekstrarafgangi á síðasta ári. Þetta er talsvert yfir áætlun sem gerð var í október í fyrra en þá var gert ráð fyrir tapi upp á 137 milljónir króna. Hagnaðurinn er því 199,7 milljónum yfir áætlunum. Ársreikningur Árborgar fyrir síðasta ár var tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær og var honum vísað til seinni umræðu en samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum. Í tilkynningu frá Árborg kemur fram að rekstur sveitarfélagsins hafi verið með svipuðu móti og fyrri ár. Heildarvelta samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta bæjarsjóðs nam tæpum 3.443 milljónum króna og það rúmum 168 milljónum króna yfir áætlun. Þá námu skatttekjur sveitarfélagsins 2.446 milljónum króna og voru tæpum 114 milljónum króna yfir áætlun. Í uppgjörinu kemur fram að mikil uppbygging hafi einkennt rekstur sveitarfélagsins síðustu ár en á síðasta ári hafi verið byrjað á seinni áfanga Sunnulækjarskóla en gert er ráð fyrir að hann verði tekinn í notkun í haust. Þá var lokið viðbyggingu nýs 6 deilda leikskóla og hafinn undirbúningur að öðrum 6 deildaleikskóla á síðasta ári. Húsnæðismál Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri eru sömuleiðis til endurskoðunar og gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir við hann á þessu ári. Fjárfestingar næstu ára verða áfram umtalsverðar vegna þeirrar hröðu uppbyggingar sem gert er ráð fyrir í sveitafélaginu, að því er segir í ársreikningum sveitarfélagsins. Ársreikningar Árborgar
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira