Actavis kaupir Lyfjaþróun 27. mars 2007 15:15
Actavis hefur keypt íslenska lyfjaþróunarfyrirtækið Lyfjaþróun hf., sem sérhæfir sig í þróun nefúðalyfja. Með kaupunum öðlast Actavis þekkingu á þróun á nýjum lyfjaformum sem félagið býr ekki yfir í dag. Kaupverð er ekki gefið upp. Í tilkynningu frá Actavis kemur fram að á undanförnum árum hafi notkun nefúðalyfja aukist mikið, m.a. í formi hormóna og stera. Búist er við að heimsmarkaður fyrir nefúðalyf vaxi um 11 prósent á árinu og að heildarsala verði um 6 milljarðar bandaríkjadala, jafnvirði 398,4 milljarða króna. Þá segir ennfremur í tilkynningunni að fyrirsjáanlegur góður vöxtur sé á næstu árum þar sem fjöldi einkaleyfa muni renna út. Í framtíðinni mun Actavis leitast við að skrá lyf Lyfjaþróunar á helstu markaði samstæðunnar og nýta þannig öflugt sölunet sitt um allan heim. Lyfjaþróun var stofnað 1991 og starfa 13 manns hjá félaginu. Búist er við að fyrstu lyfin komi á markað á árinu 2010, en félagið hefur ekki selt lyf á Íslandi.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Sjá meira