Viðræður um kjarnorkuáætlun liggja niðri 21. mars 2007 12:38
Viðræður sexveldanna svonefndu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna liggja niðri annan daginn í röð. Þeir vilja ekki snúa aftur að samningaborðinu fyrr en þeir hafa fengið aðgang að bankareikningum í Makaó sem voru frystir á sínum tíma. Um er að ræða rúma 1.600 milljarða íslenskra króna sem Bandaríkjastjórn grunaði að hefði verið aflað með ólögmætum hætti. Rannsókn virðist hafa leitt í ljós að svo hafi ekki verið og því hafa peningarnir verið fluttir frá Makaó í kínverskan banka. Erindrekar Norður-Kóreumanna hafa hins vegar ekki vilja halda viðræðunum áfram fyrr en fjármunirnir eru komnir í þeirra hendur. Vonir höfðu verið bundnar við að með viðræðum sexveldanna í Peking í Kína tækist að útfæra nýgert samkomulag um að Norður-Kóreumenn slökktu á kjarnaofni sínum í Yongbyon og legðu þar með á hilluna öll áform um frekari kjarnorkuvæðingu en þær vonir virðast nú í uppnámi. Reynt verður að koma peningunum í hendur ráðamanna í Pjongjang á næstu dögum en þótt það takist eru ýmis önnur ljón í veginum. Norðurkóreska ríkissfréttastofan sakaði í morgun japanska ráðamenn um að reyna að spilla fyrir viðræðunum með því að vilja að tengja þær örlögum japanskra borgara sem Norður-Kóreumenn eru sagðir hafa rænt á áttunda og níunda áratugnum.
Fréttir Mest lesið Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Innlent Neita að afhenda dóma lögreglumanna Innlent Stúlkan er fundin Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Fleiri fréttir Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sjá meira