Troðslan kostaði 70 þúsund krónur 6. mars 2007 23:15 CJ Miles fékk sjaldgæft tækifæri til að spreyta sig í gær og uppskar fallega troðslu og sekt NordicPhotos/GettyImages
C.J. Miles, tvítugur leikmaður Utah Jazz, átti heldur bitra innkomu með liði sínu í sigri á Charlotte Hornets í gærkvöld. Miles lék aðeins tvær mínútur í blálokin á stórsigri Utah, en uppskar lítið annað en 70 þúsund króna sekt. Miles er einn af minni spámönnum liðsins og gerði allt vitlaust á heimavelli Utah þegar hann tróð viðstöðulaust eftir sendingu félaga síns í lok leiksins. Tilþrifin voru svo mikil að hann hékk lengi í körfuhringnum til að stöðva sig og fékk dæmda á sig tæknivillu fyrir vikið. Sektin fyrir að fá dæmda á sig tæknivillu í NBA er 70 þúsund krónur og því voru þetta ansi dýrar tvær mínútur fyrir guttann. "Ég trúi ekki að það hafi verið dæmd á mig tæknivilla fyrir þetta, því það var brotið á mér þegar ég fór upp og því varð ég að grípa í hringinn til að slasa mig ekki. Ef ég hefði vitað að það ætti eftir að kosta mig þúsund dollara að spila tvær mínútur - hefði ég líklega afþakkað það," sagði Miles agndofa. "Hann þarf ekki að hafa áhyggjur af þessari sekt - við reddum honum. Þetta voru svo flott tilþrif hjá honum að við getum ekki látið hann borga þetta sjálfan," sagði Carlos Boozer félagi hans hlæjandi eftir leikinn, en hann er einn af launahæstu leikmönnum Jazz. Utah vann leikinn 120-95 og er með fjórða besta árangurinn í NBA deildinni.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira