Önnur útgáfa af Payback 24. febrúar 2007 10:59
Væntanleg er endurútgáfa á Payback með Mel Gibson á DVD mynddiski. Myndin var frumsýnd árið 1999 en tökur hennar gengu ekki áfallalaust þar sem leikstjóri myndarinnar, Brian Helgeland, þótti skila af sér slakri mynd að mati framleiðenda. Ráðist var í endurtökur sem skiluðu af sér allt annarri mynd en þeirri sem leikstjórinn ætlaði. Endurútgáfan mun koma út 10 apríl nk. og fær þá upprunaleg sýn leikstjórans að líta dagsins ljós. Meðal þeirra breytinga sem gerðar voru var að dregið var úr ofbeldisatriðum, hliðarsögum breytt eða eytt og fenginn var nýr erki óvinur sem Kris Kristoffersen lék. Sem sagt; von er á ofbeldisfyllri útgáfu á þegar ofbeldisfullri mynd þar sem erkióvinur myndarinnar er allt annar og niðurlagið ku vera talsvert öðruvísi en áhorfendur þekkja úr myndinni. Það verður óneitanlega forvitnilegt að berja þessa nýju útgáfu augum þar sem Payback þótti í flesta staði mjög fín spennumynd. Payback er alls ekki fyrsta myndin sem hlýtur svona sérmeðferð á DVD. Undir lok síðasta árs fengu áhorfendur að sjá glænýja útgáfu af Superman II þar sem breytingar frá upprunalegu útgáfunni voru talsvert miklar. Önnur byrjun, fullt af nýjum atriðum (þ.á.m. atriði með Marlon Brando) og allt annar endir. Útgáfur eins og þessar eru gullnáma fyrir aðdáendur myndanna, enda hefur endurútgáfa Superman II selst mjög vel víða um heim.
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira