Sjöundi sigur Detroit í röð 13. febrúar 2007 04:27 NordicPhotos/GettyImages
Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og unnust þeir allir á heimavelli. Detroit vann sjöunda sigurinn í röð með því að leggja LA Clippers, Denver skellti Golden State og þá vann Utah fimmta sigurinn í röð þegar það burstaði Atlanta. Detroit vann nokkuð auðveldan sigur á Clippers 92-74 þar sem Chris Webber skoraði 19 stig og hirti 9 fráköst fyrir Detroit, sem hefur unnið Clippers í átta síðustu leikjum liðanna. Cuttino Mobley skoraði 17 stig fyrir Clippers sem kláraði lengsta keppnisferðalag sitt á tímabilinu með því að tapa 5 af 7 leikjum. Liðið var án Elton Brand í nótt, en hann er meiddur. Denver vann nokkuð sannfærandi sigur á Golden State 123-111 þar sem Carmelo Anthony og J.R. Smith skoruðu 28 stig hvor fyrir Denver. Anthony spilaði lítið í fjórða leikhlutanum og átti raunar við smá meiðsli að stríða á læri sem hann varð fyrir í fjórða leikhlutanum. Al Harrington skoraði 24 stig fyrir Golden State og Kelenna Azubuike skoraði 23 stig, en liðið var enn og aftur án leikstjórnandans Baron Davis. Í gær tilkynntu forráðamenn Golden State svo að Davis þyrfti í lítinn hnéuppskurð og verður hann því frá keppni um óákveðinn tíma. Loks vann Utah Jazz fimmta leikinn í röð þegar liðið burstaði Atlanta Hawks 102-76 á heimavelli. Atlanta hafði unnið fimm útileiki í röð fyrir leikinn, en átti aldrei möguleika eftir það nýtti aðeins 4 af 17 skotum sínum í fyrsta leikhlutanum. Mehmet Okur skoraði 19 stig fyrir Utah en spilaði ekkert í fjórða leikhlutanum, Derek Fisher skoraði 14 stig og Paul Millsap skoraði 13 stig og hirti 9 fráköst á aðeins 17 mínútum. Marvin Williams skoraði 15 stig fyrir Atlanta og Joe Johnson 14.
NBA Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira