Kaupþing með uppfærða afkomuspá Alfesca 15. janúar 2007 16:54
Greiningardeild Kaupþings hefur gefið út uppfærða afkomuspá sína fyrir matvælaframleiðandann Alfesca. Spáin er gerð í ljósi upplýsinga sem ekki lágu fyrir við gerð síðustu afkomuspár í lok nóvember. Deildin ítrekar fyrra verðmat sitt og mælir með því að fjárfestar minnki við sig í félaginu. Í afkomuspá Alfesca segir að fyrirtækið hafi selt húsnæði sitt í Hafnarfirði í desember og sé áætlað að bókfærður hagnaður vegna sölunnar muni nema um einni milljón evra eða um 92 milljónum íslenskra króna. Salan hækkar hagnaðarspá Alfesca á fjórðungnum og fyrir árið í heild um 800 þúsund evrur eða 73,6 milljónir íslenskra króna. Er gert ráð fyrir að hagnaður Alfesca á öðrum fjórðungi fjárhagsársins muni nema 19,9 milljónum evra eða 1,8 milljörðum króna og að hagnaður félagsins fyrir árið í heild verði 18,1 milljón evra eða rúmlega 1,6 milljörðum króna. Greiningadeild Kaupþings hefur ekki breytt verðmati sínu á Alfesca vegna þessa og telur að fjórðungurinn verði ekki nægilega góður fyrir félagið í heild. „Við höldum tólf mánaða markgengi okkar óbreyttu og mælum áfram með því að fjárfestar minnki við sig í félaginu (Reduce)," segir greiningardeildin.Afkomuspá Alfesca
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Sjá meira