Fyrstu jöklabréf ársins gefin út í dag 3. janúar 2007 16:33
ABN Amro, einn stærsti banki Hollands, gaf út svokölluð jöklabréf fyrir þrjá milljarða krónur í dag. Bréfið er með gjalddaga 11. janúar á næsta ári og ber 14 prósenta vexti. Þetta er fyrsta jöklabréfið á árinu og það fyrsta síðan í byrjun desember, að sögn greiningardeildar Landsbankans. Jöklabréf fyrir 35 milljarða krónur verða á gjalddaga á fyrsta fjórðungi þessa árs, þar af eru 5 milljarðar á gjalddaga á morgun. Greiningardeildin segir í Vegvísi sínum í dag að útgáfur jöklabréfa hafi farið af stað með miklum krafti haustið 2005 auk þess sem kippur hafi komið í útgáfu þeirra um áramótin 2005-2006. Deildin segir ennfremur nokkra óvissu hafa ríkt um það hvernig markaðurinn brygðist við fyrstu gjalddögum bréfanna síðasta haust. Þeir liðu hins vegar án stóráfalla. Í Vegvísinum segir að tveir mánuðir séu liðnir frá því að jöklabréf var síðast á gjalddaga en alls verða um 35 milljarða króna á gjalddaga á fyrsta fjórðungi þessa árs, þar af 5 milljarðar króna á morgun. Útistandandi upphæð útgefinna bréfa, án áfallinna vaxta, er í dag rúmlega 275 milljarðar króna, að sögn Landsbankans.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira