Metgjalddagi hafði lítil áhrif á gengi 21. september 2007 09:01
Krónubréf að nafnvirði sextíu milljarðar króna féllu á gjalddaga í gær. Þetta var stærsti einstaki krónubréfagjalddagi frá því að útgáfa þeirra hófst í ágúst 2005. Krónan veiktist um 0,38 prósent í gær. Ragnhildur Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Greiningu Glitnis, segir veikinguna sennilega ekki að rekja til gjalddaganna. „Við teljum að áhrifin af þeim hafi þegar verið komin fram. Það er líklegra að veikingu krónunnar í síðustu viku megi að einhverju leyti rekja til gjalddaganna nú, þó að erfitt sé að segja til um það með vissu.“ Greiningardeildin áætlar að um helmingur þeirra bréfa sem féllu á gjalddaga í gær hafi þegar verið framlengdur. Krónubréfaútgáfa í september nemur nú þrettán milljörðum króna en bréf á gjalddaga nema 82,5 milljörðum. Þetta er í fyrsta sinn sem meira magn bréfa fellur á gjalddaga en er útgefið í einum mánuði. Í júlí og ágúst var mun meira magn krónubréfa útgefið en féll á gjalddaga. Ætla má að hluti af þeim útgáfum hafi verið framlenging á bréfunum sem féllu á gjalddaga nú. „Það virðist vera að draga aðeins úr krónubréfaútgáfu. Það skýrist helst af aukinni áhættufælni og lausafjárskorti á alþjóðamörkuðum í kjölfar vandræða á ótryggum húsnæðismarkaði í Bandaríkjunum,“ segir Ragnhildur.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira