Rekstrarlögmálin gilda ekki alltaf 9. maí 2007 05:45 Stephon Marbury Knicks tapaði mestum peningum á leiktíðinni 2005-´06 og vegur þar mikill launakostnaður drjúgt.
Átta af þrjátíu liðum NBA-deildarinnar skiluðu rekstrartapi fyrir afskriftir (EBITDA) á keppnistímabilinu 2005-2006 samkvæmt úttekt viðskiptatímaritsins Forbes. Verðmæti NBA-liða og rekstrarárangur helst alls ekki í hendur því tvö af þremur verðmætustu félagsliðunum skiluðu mestu EBITDA-tapi: New York Knicks, sem er verðmætasta NBA-liðið, var með mesta rekstrartapið eða 2,6 milljarða króna og Dallas Mavericks, þriðja verðmætasta félagsliðið, tapaði 1,6 milljörðum króna. Chicago Bulls, þriðja sigursælasta lið NBA-deildarinnar frá upphafi, skilaði mesta rekstrarhagnaði, um 3.250 milljónum króna, en aðeins Phoenix Suns og L.A. Lakers skiluðu einnig yfir tveggja milljarða „EBITDA“. Bulls er í fjórða sæti Forbes yfir verðmætustu NBA-liðin. Heildarvelta þrjátíu NBA-liða var yfir 225 milljarðar króna leikárið 2005-2006. Himinn og haf er á milli liða frá stórborgum og smærri stöðum hvað veltu snertir. Stórborgarliðin njóta stærðarinnar í formi meiri sjónvarpstekna og hærra miðaverðs en lið frá minni borgum. Þannig var velta New York Knicks um 12,4 milljarðar króna, sem var 140 prósentum hærri upphæð en hjá veltuminnsta liðinu, Portland TrailBlazers. Lakers var með um 11,1 milljarð í tekjur og velta Bulls stóð í tæpum tíu milljörðum. Enn og aftur metur Forbes Knicks sem verðmætasta félagslið NBA-deildarinnar. Þetta gerist þrátt fyrir hörmulegt gengi Knicks á þarsíðasta keppnistímabili, innan sem utan vallar. Liðið var metið á 40 milljarða króna í fyrra, sem var níu prósenta hækkun frá fyrra ári. Þrátt fyrir gríðarlegt rekstrartap er margt sem fellur til með liðinu. Það er á besta markaðssvæði NBA og Cablevision, eigandi Knicks, á gullmolann Madison Square Garden og félagið nýtur mestra tekna af auglýsingum, sjónarpi og miðasölu. Launakostnaður Knicks, upp á 7,9 milljarða, var hins vegar mun meiri en hjá öðrum félögum og samt tapaði liðið næstflestum leikjum allra liða. Það er aðeins tímaspursmál hvenær Lakers, annað sigursælasta liðið í sögu NBA, verður orðið verðmætasta liðið, en Lakers er metið á rúma 38 milljarða króna. Ólíkt Knicks hefur Lakers hvorki tapað peningum af reglulegri starfsemi né verið aðhlátursefni innan leikvallar með Kobe Bryant innanborðs. Þrátt fyrir háa húsaleigu í Staples Center hefur stjórnendum Lakers tekist að hækka miðaverð jafnt og þétt og kostar ársmiðinn við hliðarlínuna um sjö milljónir króna. Dallas Mavericks hefur skilað rekstrartapi svo lengi sem elstu menn muna. Samt er liðið það þriðja verðmætasta að mati Forbes og spilar þar einkum verðmætur heimavöllur og öflugt markaðsstarf stóra rullu. Mavs náði bestum árangri allra liða í NBA í vetur en féll úr leik á skammarlegan hátt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Birtist í Fréttablaðinu Héðan og þaðan Mest lesið „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Viðskipti innlent Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Viðskipti innlent Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Neytendur Verðmerkingum 49 verslana ábótavant Neytendur Sækja á fjórða milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Sjá meira