Stefnt að skráningu Teymis í Kauphöllina 17. nóvember 2006 11:25 Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis.
Stofnfundur fjarskipta- og upplýsingatæknifélagsins Teymis hf. var haldinn í morgun. Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Innan samstæðu félagsins verða eftirtalin fyrirtæki: Vodafone, Kögun, Skýrr, Securitas og EJS. Auk þess rekur Teymi fyrirtæki á borð við P/F Kall, Mömmu, BTnet og lággjaldasímafélagið SKO. Í fjarskiptahluta Teymis verða fyrirtækin Vodafone á Íslandi, SKO, P/F Kall í Færeyjum og Mamma. Í öryggishlutanum verður Securitas og í upplýsingatæknihlutanum verða Kögun, Skýrr og EJS. Stjórn Teymis var kosin á stofnfundi félagsins í morgun. Í stjórn félagsins eru: Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður, Þorsteinn M. Jónsson, Guðmundur Ólason, Matthías Imsland og Þór Sigfússon. Árni Pétur Jónsson forstjóri Teymis, segir í tilkynningu að fyrirtæki innan samstæðunnar búi yfir miklum vaxtartækifærum og því séu spennandi tímar framundan. Hann segir að markmiðið með stofnun Teymis sé að leiða vöxt og framþróun fyrirtækja í samstæðunni. „Við viljum að Teymi verði skýr valkostur fyrir fjárfesta. Við ætlum að hámarka rekstur hvers fyrirtækis fyrir sig. Við munum því leita leiða til að auka sérhæfingu fyrirtækjanna og finna nýja tekjumöguleika, m.a. í samstarfi þeirra á milli. Áhersla okkar er á aukna sjálfvirkni og aðhald í rekstri," segir hann.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira