Afkoma Alfesca yfir væntingum 16. nóvember 2006 15:49
Matvælafyrirtækið Alfesca skilaði 1,8 milljóna evra tapi á síðasta fjárhagsári, sem hófst í júlí í fyrra en lauk í enda júní. Þetta svarar til 161,6 milljóna íslenskra króna samanborið við 3,3 milljónir evra eða 296 milljóna króna tap í fyrra. Afkoman er nokkuð yfir væntingum greiningardeilda sem spáðu að tapið myndi nema rúmum 215 milljónum króna eða 2,4 milljónum evra. Í ársuppgjöri Alfesca kemur fram að á fyrsta ársfjórðungi hafi sala numið 112 milljónum evra eða rúmum 10 milljörðum króna, sem er 6,7 prósenta aukning á milli ára. Salan jókst á öllum helstu markaðssvæðum í Frakklandi, Bretlandi og á Spáni. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á fjórðungnum nam 3,5 milljónum evra eða rúmum 314 milljónum króna sem er 16 prósenta aukning á milli ára. Xavier Govare, forstjóri Alfesca, segir rekstrarafkomuna á fyrsta fjórðungi nýs fjárhagsárs nokkuð betri en áætlanir gerðu ráð fyrir þrátt fyrir að hráefnisverð á laxi hafi verið í sögulegu hámarki. „Framundan er mikilvægasti fjórðungur félagsins þar sem milli 60-70% af framlegð félagsins myndast. Hráefnisverð á laxi hefur lækkað hratt að undanförnu sem eru jákvæðar fréttir fyrir Alfesca. Sala það sem af er öðrum ársfjórðungi hefur verið í samræmi við áætlanir og útlitið fyrir desember og fjórðunginn í heild verður því að teljast gott," segir hann.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira