TM hækkar hlutafé 10. október 2006 09:39 Tryggingamiðstöðin.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) hefur ákveðið að hækka hlutafé félagsins um 157,8 milljónir króna að nafnverði sem selt verður á genginu 38 til að styrkja eiginfjárstöðu félagsins vegna kaupa á hlutum í norska tryggingafélaginu NEMI Forsikring. Glitnir hefur umsjón með útboðinu og hefur sölutryggt sölu allra hluta. Í tilkynningu frá TM segir að hluthafar hafi samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé um allt að 186,5 milljónir króna að nafnvirði á hluthafafundi í félaginu 26. september síðastliðinn. Í tengslum við hlutafjáraukninguna verður gefin út útboðs- og skráningarlýsing fyrir 25. október og daginn eftir birtingu hefst forgangsréttarútboð til núverandi eigenda félagsins sem stendur í tvo daga. Útboðs- og skráningarlýsing verður birt á fréttavef Kauphallar Íslands hf. áður en útboð hefst, að því er segir í tilkynningunni. Þá segir ennfremur að hluthafar hafi heimild til að skrá sig fyrir stærri hlut en þeir eigi forgangsrétt til þannig að ef aðrir hluthafar nýta ekki forgangsrétt sinn fá hinir fyrrnefndu aukinn rétt í samræmi við hlutafjáreign sína. Miðað verður við hluthafaskrá félagsins 4. október hverjir eigi forgangsrétt að bréfunum en þeir hluthafar sem hafa selt hlut sinn fyrir forgangsréttarútboð hafa ekki heimild til að nýta forgangsrétt sinn.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Viðskipti erlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Sjá meira