Lofar markaveislu annað kvöld 3. október 2006 15:52 Logi Ólafsson lofar markaveislu á Laugardalsvellinum annað kvöld, en þegar eru yfir 7000 miðar seldir á leikinn
Logi Ólafsson segist verða milli steins og sleggju þegar hans menn mæta Íslandsmeisturum FH á Laugardalsvelli á morgun í kjölfar yfirlýsinga kollega hans Ólafs Jóhannessonar, þjálfara FH, á blaðamannafundi sem haldinn var í dag. Logi segist vera milli steins og sleggju fyrir leikinn vegna yfirlýsingar Ólafs Jóhannessonar á blaðamannafundi í morgun, þar sem Jóhannes lýsti því yfir að hann ætlaði að segja starfi sínu lausu ef FH tapaði leiknum. "FH er auðvitað mitt móðurfélag og ég ber mikla virðingu fyrir Ólafi, svo það yrði mér sannarlega þungbært að þurfa að láta hann standa við orð sín - enda erum við góðir vinir og nágrannar," sagði Logi í samtali við Vísi í dag. "Spennustigið í hópnum er mjög hátt en undirbúningurinn hefur verið mjög góður og raunar með nákvæmlega sama hætti og hjá hvaða stórliði sem er. Við gistum á Nordica hótelinu í nótt og snæðum saman morgunverð og förum í gönguferð á morgun. Einhverjir telja kannski að það sé ekki góður undirbúningur að gera þessa hluti sem við höfum verið að gera utan vallar - eins og að fara í "meikóver" og annað, en menn verða líka að efla andann," sagði Logi. Þegar hann var spurður hvort væri ekki skrekkur í Nördunum fyrir leikinn sagði Logi mannskapinn vera orðinn ýmsu vanur eftir leikinn á Litla-Hrauni á dögunum. "Menn voru ansi smeykir framan af leiknum gegn mönnunum á Hrauninu, en þar naut ég aðstoðar Ólafs Þórðarsonar sem er svipað innrættur og menn innan veggja fangelsisins - og tel ég að hann hafi stappað stálinu verulega í leikmennina, enda var allt annað að sjá til þeirra í síðari hálfleik." Leikur FH og KF Nörd hefst klukkan 19:30 á Laugardalsvellinum annað kvöld, en hefur Logi sett sér og liði sínu skýrt markmið fyrir leikinn? "Já, ég ætla að lofa mörgum mörkum. Markmiðið er að skora fleiri mörk en andstæðingurinn og ekki má gleyma því að við verðum þarna með eitt eða tvö leynivopn. Örvænting Ólafs er orðin það mikil að ég held að hann ætli sjálfur að spila með FH part úr leiknum og það sýnir bara að þeir taka okkur mjög alvarlega, en eins og ég sagði ætlum við að skora fullt af mörkum og vonumst svo til þess að æðri máttarvöld verði með okkur í varnarleiknum," sagði Logi og bætti því við að hann ætlaði ekki að hætta að þjálfa KF Nörd þó leikurinn tapaðist, enda hefði verið lagt upp með fórnarkostnað þegar liðið var lagt á laggirnar.
Íslenski boltinn Innlendar Íþróttir Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira