Enn líf á íbúðamarkaði 22. september 2006 12:41 Nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðaverð hækkaði um 2,4 prósent á milli júlí og ágúst á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt vísitölu sem Fasteignamat ríkisins birti í gær. Mælingin gefur til kynna að enn sé líf að finna á íbúðamarkaði og bið sé í verðlækkun, að mati greiningardeildar Glitnis. Deildin segir veltu á íbúðamarkaði hafa aukist aðeins á ný síðustu vikurnar eftir að sumarleyfum lauk og hafi það dregið úr svartsýni manna í efnahagsmálum. Misvísandi merki berist hins vegar af íbúðamarkaðinum þessa dagana. Íbúðaverð hafi til dæmis lækkað um 1,7 prósent á milli júní og júlí og velta snarminnkað síðustu mánuðina. Hugsanlegt sé að ólík verðþróun eigi sér stað í mismunandi stærðarflokkum íbúða um þessar mundir sem geti skekkt útreikninga að einhverju leyti í ljósi óverulegrar veltu, að mati deildarinnar. Rétt sé því að lesa ekki of mikið í verðbreytingar yfir einstaka mánuði á íbúðamarkaði en á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 10,8 prósent á höfuðborgarsvæðinu. Greiningardeildin telur ennfremur að þrýstingur verði til verðlækkunar íbúða á næstu misserum. Vextir á nýjum íbúðalánum hafa hækkað og aðgangur fólks að fjármagni hafi minnkað. Þá ógni verðbólguskotiðalmennum kaupmætti og hafi það dregið úr tiltrú neytenda. Stuðli þessir þættir að minnkandi eftirspurn á íbúðamarkaði miðað við núverandi verð.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Telja viðgerð geta tekið allt að ár Viðskipti innlent Græða á tá og fingri á svikum og prettum Viðskipti erlent Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Viðskipti erlent Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Viðskipti innlent Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Viðskipti innlent Bretar veita Alvotech leyfið sem fékkst ekki í Bandaríkjunum Viðskipti innlent Steinunn frá UNICEF til Festu Viðskipti innlent Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telja viðgerð geta tekið allt að ár Ráðin forstöðukona Þjónustu Veitna Bretar veita Alvotech leyfið sem fékkst ekki í Bandaríkjunum Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Samorku Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Bein útsending: Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Sjá meira