OR tapaði 6,2 milljörðum króna 30. ágúst 2006 15:17 Hús Orkuveitu Reykjavíkur. Mynd/Vilhelm
Orkuveita Reykjavíkur (OR) tapaði tæpum 6,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkur umsnúningur á rekstri OR en hún skilaði tæplega 1,5 milljarða króna hagnaði á sama tíma í fyrra. Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt en gengistap af langtímaskuldum nam 10,8 milljörðum króna á fyrri hluta árs. Í tilkynningu frá OR til Kauphallar Íslands námu rekstrartekjur fyrirtækisins á fyrri hluta árs 8,5 milljörðum króna en þær námu tæpum 7,2 milljörðum á sama tíma í fyrra. Þá kemur fram að hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var rúmir 3,8 milljarðar króna samanborið við tæpa 2,9 milljarða krónur fyrir ári. Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna voru tæpir 2,1 milljarður krónu á fyrstu sex mánuðum ársins en nam 1,5 milljörðum á sama tíma í fyrra. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um tæpa 11,6 milljarða krónur á tímabilinu sem er viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar þeir voru jákvæðir um 166 milljónir króna. Heildareignir OR námu 121,2 milljörðum króna í lok júní en námu 79,5 milljörðum á sama tíma í fyrra. Þá var eigið fé OR í lok júní 54,1 milljarður króna en var 42,6 milljarðar fyrir ári. Þá voru heildarskuldir OR í lok júní 67 milljarðar króna en þær voru tæplega 36,8 milljarðar króna á sama tíma í fyrra. Í tilkynningunni segir að sá hluti starfsemi OR sem lúti að rekstri vatnsveitu og fráveitu verður áfram undanskilinn tekjuskatti en reiknuð tekjuskattsinneign fyrstu 6 mánuði ársins nam tæpum 3,7 milljörðum króna. Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt en gengistap félagsins af langtímaskuldum nam 10,8 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira