Taprekstur hjá SS 18. ágúst 2006 15:29 Úr sláturhúsi SS á Selfossi. Mynd/Pjetur
Samstæða Sláturfélags Suðurlands tapaði 24,8 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkur umsnúningur frá síðasta ári þegar félagið skilaði 182 milljóna króna hagnaði. Í uppgjöri félagsins segir að aðstæður á kjötmarkaði hafi einkennst af skort á nær öllum kjöttegundum. Reiknað er með því að framboð aukist á næstu sex mánuðum og muni velta félagsins vaxa við það. Í hálfsársuppgjöri samstæðunnar kemur fram að lakari afkoma skýrist af 136 milljóna króna minni hagnaði af sölu eigna og 107 milljóna króna hækkun fjármagnsgjalda milli ára vegna gengisbreytingar krónu, hærri vaxta og verðbólgu. Eigið fé Sláturfélagsins er tæpir 1,5 milljarðar króna og er eiginfjárhlutfall samstæðunnar 46 prósent. Þá námu rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands tæpum 2,3 milljörðum króna á fyrri árshelmingi ársins 2006 og er það 2 prósenta hækkun frá sama tíma í fyrra. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 142 milljónir króna en voru 35 milljónir króna árið áður. Gengistap nam 96 milljónum króna samanborið við 3 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Hagnaður af sölu hlutabréfa var 5 milljónir sem er 122 milljónum krónum minna en í fyrra. Þá voru heildareignir Sláturfélagsins í júnílok rúmir 3,2 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 46 prósent. Veltufjárhlutfall var 1,6 í lok júní 2006, en var 2,0 árið áður. Í uppgjörinu kemur einnig fram að ekki sé gert ráð fyrir söluhagnaði af eignum með sama hætti og í fyrra sem hefur neikvæð áhrif á afkomu samstæðunnar milli ára. Háir vextir á innlendri fjármögnun og veiking íslensku krónunnar hefur neikvæð áhrif á afkomu félagsins þar sem það hefur óverulegar tekjur í erlendri mynt, segir í uppgjörinu.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira