Tilviljanir að ekki hafi orðið stórslys 27. júlí 2006 11:56 MYND/Vísir
Tilviljanir virðast hafa ráðið því að undanförnu að ekki hafa orðið stórslys þegar vöruflutningabílum hefur hlekkst á, á þjóðvegum landsins. Slíkum slysum hefur fjölgað talsvert frá því í fyrra. Ökumaður olíuflutningabílsins sem valt í Ljósavatnsskarði í fyradag er á góðum batavegi. Sama er að segja um bílstjóra flutningabílsins sem valt á Bessastaðafjalli í Fljótsdal í gær. Þykir reyndar ganga kraftaverki næst að hann skuli hafa sloppið lifandi miðað við skemmdir á bílnum. Í báðum þessum tilvikum, og reyndar fleiri upp á síðkastið, hefur viljað svo vel til að aðrir vegfarendur, hvorki gangandi, ríðandi né akandi, hafa átt leið um þegar slysin urðu. Frá áramótum til maíloka hafa orðið 333 slys og óhöpp þar sem vöruflutningabílar eiga hlut að máli sem er fjölgun um 70 frá sama tímabili í fyrra. Slysum þar sem vöruflutningabílar hafa komið við sögu hefur líka fjölgað úr 23 í fyrra í 31 í ár, og eru slysin í gær og fyrradag þá ekki meðtalin. Svo virðist sem olíubíllinn sem valt í fyrradag hafi verið á of miklum hraða, en ekki liggur fyrir hvað olli slysinu á Bessasatðafjalli í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira