Hagnaður Straums-Burðaráss minni á milli ára 18. júlí 2006 14:54
Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hagnaðist um 307 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2006. Þetta er 90 prósentum minna en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam rétt rúmum þremur milljörðum króna. Hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins nemur tæpum 19,4 milljörðum króna sem er rúmum 11,7 milljörðum meira en á sama tíma fyrir ári. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að hreinar rekstrartekjur bankans á öðrum ársfjórðungi hafi numið 1,2 milljörðum króna sem er 69,6 prósenta lækkun á milli ára en rekstrartekjur á öðrum ársfjórðungi í fyrra námu rúmum 3,6 milljörðum króna. Þá námu hreinar rekstrartekjur bankans 25,4 milljörðum króna sem er 168 prósenta hækkun frá sama tíma á síðasta ári þegar þær námu tæpum 9,5 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár var 17,8 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins sem jafngildir 38,8 prósenta arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli. Arðsemi eigin fjár í fyrra var 46,5 prósent. Þá nam hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum 5,9 prósentum á fyrri helmingi ársins en var 3,9 prósent í fyrra. Hreinar þóknunartekjur tæplega fimmfölduðust á milli ára. Þær námu tæpum 3,5 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en voru 617 milljónir á sama tíma í fyrra. Þá námu heildareignir bankans 340,8 milljónum króna í lok annars ársfjórðungs en þær voru 259,3 milljónir króna í lok síðasta árs en aukningin nemur 31 prósenti frá áramótum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira