Tekjuafgangur Akureyrarbæjar 360 milljónir 9. mars 2006 13:31 Mynd/Vísir
Heildarniðurstaða ársreikninga Akureyrarbæjar fyrir síðasta ár, sem lagðir voru fram í bæjarráði Akureyrar í dag, er mun betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Fjárhagurinn er traustur og er rekstrarniðurstaða samstæðunnar jákvæð um ríflega 360 milljónir króna. Áætlun hafði gert ráð fyrir 144,2 milljóna króna hagnaði. Veltufé frá rekstri nemur tæpum 1,7 milljörðum og eignir sveitarfélagsins eru bókfærðar á rúma 22 milljarða króna. Í ársreikningum Akureyrarbæjar kemur fram að reksturinn hafi gengið afar vel á síðasta ári. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 1,67 milljarða króna og var handbært frá rekstri 1,66 milljarðar króna. Þá námu fjárfestingarhreyfingar samtals tæplega 2,18 milljörðum króna. Þá nam afborgun langtímalána 587,1 milljón króna en ný langtímalán námu 1.393,3 milljónum króna. Hækkun á handbæru fé á árinu nam 13,2 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 1.502 milljónum króna.Í ársreikningunum kemur jafnframt fram að stöðugildi hjá Akureyrarbæ hafi verið 1.456 talsins og sé það 36 stöðugildum meira en árið á undan. Námu heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda bæjarins 4.394.268 þúsundum króna, að því er segir í ársreikningum Akureyrarbæjar. Þá námu skatttekjur sveitarfélagsins 290.000 krónum á hvern íbúa en tekjur voru samtals 608.000 krónur á hvern íbúa. Til samanburðar voru skatttekjur Akureyrarbæjar 260.000 krónur á hvern íbúa árið 2004.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira