Icelandair skilaði fjórum milljörðum: Stefnt að skráningu félagsins sjötta desember. 16. nóvember 2006 07:15 Fjögurra milljarða hagnaður fyrir skatta Tekjur aukast um 23 prósent á milli ára. Fréttablaðið/teitur MYND/Teitur
Hagnaður Icelandair Group, sem stefnt verður á að skrá í Kauphöll Íslands hinn 6. desember, nam rúmum þremur milljörðum króna fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi og tæpum fjórum milljörðum króna fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. Jón Karl Ólafsson, forstjóri félagsins, segir að þetta sé einn besti árangur í sögu þess. Afkoma stærstu einingarinnar, millilandaflugsins, hefur verið góð þrátt fyrir tveggja milljarða hækkun á eldsneytisverði á árinu. Rekstrartekjur félagsins voru 43,6 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðunum og hækkuðu um 8,2 milljarða króna á milli ára eða sem svarar 23 prósenta aukningu. Rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) nam 3,8 milljörðum króna og hækkaði um einn milljarð á milli ára. Eignir Icelandair Group stóðu í 67,9 milljörðum króna í lok september og höfðu hækkað um 5,6 prósent frá áramótum. Eigið fé var 23,4 milljarðar og hafði hækkað um rúman fimmtung frá ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar nemur því 34,4 prósentum. Icelandair var í eigu FL Group á fyrstu níu mánuðum ársins en var síðar selt til hóps fjárfesta og Glitnis fyrir alls 43 milljarða króna. Glitnir mun selja bréf áfram, meðal annars til almennra fjárfesta.
Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira