Óvíst með afslátt af Sterling 15. nóvember 2006 07:15 Sterling Að sögn Hannesar Smárasonar skýrist það í mars hvort kaupvirði á Sterling lækki vegna ákvæða í kaupsamningi.
Þrátt fyrir að mikill bati hafi orðið á rekstri Sterlings, norræna lággjaldaflugfélagsins, frá árinu 2005 gæti FL Group fengið afslátt af Sterling þar sem kaupverðið, 1,5 milljarðar danskra króna, er háð afkomu ársins 2006. „Þetta skýrist um leið og niðurstaða ársins liggur fyrir. Því kemur ekkert í ljós fyrr en í mars árið 2007, hvernig það mál endar,“ segir Hannes Smárason, forstjóri FL. Í kaupsamningi FL Group við fyrrum eigendur Sterlings miðaðist kaupverðið á Sterling við að félagið myndi skila rekstrarhagnaði fyrir afskriftir (EBITDA) að upphæð 345 milljónir danskra króna, eða fjórir milljarðar króna, árið 2006. Sterling skilaði neikvæðum rekstrarhagnaði upp á 75 milljónir danskra króna, eða 877 milljónir króna, á fyrstu níu mánuðum ársins að viðbættum einskiptiskostnaði vegna samruna Sterling og Maersk. Getur kaupverðið því hækkað eða lækkað um 500 milljónir danskra króna (5,8 milljarða) verði frávik frá forsendum. „Okkar áætlanir gera ráð fyrir að við náum að skila félaginu [Sterling] réttu megin við núllið með tilliti til einskiptiskostnaðar sem tengist samrunanum,“ segir Hannes.
Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira