Slagurinn kostaði 2,2 milljarða 21. október 2006 06:00 Róbert Wessman forstjóri Actavis Actavis telur kostnað upp á 2,2 milljarða króna ásættanlegan fórnarkostnað miðað við umfang verkefnisins sem ráðist var í þegar reynd var yfirtaka á PLIVA.
Actavis Group hefur selt allt hlutafé sitt í króatíska lyfjafyrirtækinu PLIVA til Barr Pharmaceuticals. Útboðsferlinu þar sem Barr og Actavis slógust um tíma um PLIVA lauk formlega í gær og hefur Barr eignast 92 prósent hlutafjár í PLIVA. Barr/PLIVA er þar með orðið þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims. Eignarhlutur Actavis og kaupréttarsamningar nam 20,8 prósentum af heildarhlutafé PLIVA og var seldur á 820 kúnur á hlut, í samræmi við yfirtökutilboð Barr. Söluandvirði bréfanna nemur því rétt um 37 milljörðum króna, en hagnaður Actavis af sölunni mætir að hluta kostnaði sem félagið hefur borið af yfirtökuferlinu. Gjaldfærður kostnaður Actavis af yfirtökuferlin nemur 25 milljónum evra,eða tæpum 2,2 milljörðum íslenskra króna og verður hann reikningsfærður á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Hefur þá verið tekið að fullu tillit til hagnaðs af sölu bréfanna. Gjaldfærslan er ekki sögð hafa áhrif á fjárhagsleg markmið félagsins á árinu. Yfirtökuferlið er sagt það flóknasta sem Actavis hefur ráðist í og fól meðal annars í sér ítarlega áreiðanleikakönnun, kostnað vegna bankatryggingar og umsóknarferli til samkeppnisyfirvalda í 14 löndum. Róbert Wessman, forstjóri Actavis, segir ákvörðunina um að selja hlutinn í PLIVA vera í samræmi við fjárfestingastefnu Actavis. „Við töldum ekki rétttlætanlegt að greiða hærra verð fyrir félagið en við höfðum áður boðið og teljum það ekki lengur þjóna hagsmunum félagsins að halda hlut okkar í félaginu,“ segir hann og kveður áfram leitað að fjárfestingatækifæra með það markmið að skipa Actavis í hóp stærstu samheitalyfjafyrirtækja.
Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira